miðvikudagur, apríl 16, 2008

Barcelona hér kem ég

Ég er til allrar hamingju að leggja land undir fót og ætla til Barcelona á næstunni. Það finnst mér gott. Ég hef nokkrum sinnum komið til borgar þessarar og alltaf fundist stórfínt að vera þar, síðast var ég þar sumarið 2001 en þá bæði hóf ég og lauk interrail-ferðalagi mínu á heimsókn til Barca þar sem ég ásamt ferðafélgögum mínum fékk gistingu þar hjá Helgu Soffíu vinkonu minni sem þá bjó þar. Nú býr Helga þar aftur ásamt sínum ektamanni Sölva og það er einmitt það besta við þessa ferð mína sem brátt kemur að, að ég er að fara að heimsækja þau bestu og ekki síður að hitta systur mína bestu sem einnig er á leið til Barcelona bestu. Er einhvern veginn alveg farin að sjá dagana fyrir mér og það heldur mér gangandi núna. Ekki skemmir svo staðsetningin fyrir en í öllum sannleika sagt þá held ég að tilhlökkunin væri alveg jafn mikil ef þau byggju á Kópaskeri, því annars ágæta þorpi. Rólegheit, sötur, spjall, afslappelsi, góður matur og smá vorfílingur í besta hugsanlega félagsskap er semsagt það sem koma skal hjá mér.
Mér er farið að þykja færsla þessi vera heldur háfleyg og hef því hug á að fleygja mér í bólið, það eru víst nokkrir vinnudagar til stefnu áður en herlegheitin hefjast.

Lifið heil.........og.........."Recognize!!!!!!!!"

8 ummæli:

Asta sagði...

Gaman saman bráðum spráðum - vei!

Unknown sagði...

ohhh en yndislegt! Verd med i anda!! :)

HelgaSoffia sagði...

Hlakka til að sjá þig, heimastúlka!

osk sagði...

Oooo, Barcelona, mjog abbo! Vid Toby erum einmitt ad fara ad kikja til Berlinar thar naestu helgi ad hitta Mommu og Pabba, Korinn hennar Mommu er ad singja thar svo vid akvodum ad skella okkur i sma helgarferd ad hitta thau. Skemmtid thid ykkur vel og eg hlakka til ad heyra ferdasogurnar!
Bless i bili. xxxxx

Nafnlaus sagði...

aei mig langar svo til Barcelona líka....

Nafnlaus sagði...

Úje - hvað ertu? HVAÐ ERTU????
oh ég er svo abbó. góða ferð og ég veit ég þarf ekki að óska þér góðrar skemmtunar. hafðu það gott bestust og sötraðu smá fyrir mig ;)

Hulda sagði...

VALDAKISA!!!!!!!!!!!

Nafnlaus sagði...

JÁÁÁÁÁ!!!!!