laugardagur, apríl 19, 2008

Kassi 2, en ekki 3, eða 1, eða 2 eða????

Ég hef síðastliðnar vikur eða mánuði tekið þátt í einhverri vitleysu á nuid.is þar sem maður á að velja einn kassa af 3, velja svo já takk, nei takk eða kýsa að svara ekki og svo fær maður að vita hvort maður hefur unnið eitthvað. Samkvæmt núinu hefur maður alltaf séns á að vinna einhverja utanlandsferð og er það eingöngu vegna þess sem ég nenni að standa í þessu. Ég hins vegar, líkt og Guðrún Lilja vinkona mín, hef aldrie unnið neitt slíkt en fæ stundum glaðning, eins og þeir kalla það, sem iðulega er afsláttur annað hvort af einhverri grennandi snyrtimeðferð á snyrtistofum bæjarins eða afsláttur af einhverju ruslfæði á búllum bæjarins.............þeir ættu kannski aðeins að hugsa þetta til enda.


Alla veg þá vel ég alltaf.............já alltaf............kassa nr 3...........og iðulega kemur svarið, því miður eniginn glaðningur í þetta skiptið, glaðningurinn var í kassa nr 2, ekki nr 3. (Glaðningurinn er nátturúlega ekki alveg alltaf utanlandsferð sko en oftast einhver afsláttur). Svo þurfa þeir alltaf að tilkynna mér það að í síðustu viku hafi einhver random manneskja, sem þeir nefna á nafn, valið einhvern ákveðinn kassa og unnið ferð til Prag/Barcelona/London etc........einsog mér sé ekki skítsama þó að María einhver eða Jóna einhver hafi unnið eitthvað sem mig langar í.

Alltaf segja þeir samt að glaðningurinn hafi verið í kassa 2 en ekki 3. Núna ætla ég að breyta um taktík...........ég ætla núna alltaf að velja kassa 2 og aldrei kassa 3...........sjáum hvað setur............kannski segja þeir mér nú að glaðningurinn hafi alltaf verið í kassa 1 en ekki 2, sjáum til............ég leyfi ykkur að fylgjast með. Og já, ég geri ráð fyrir því að þið séuð agalega spennt að vita um framvindu mála!

5 ummæli:

Nafnlaus sagði...

Hello! I am a reader from the Philippines. I found your site very interesting. It is worth the visit.

Hulda sagði...

já einmitt, því þú skilur svo mikla íslensku!

Asta sagði...

Haha, góður þessi!

Mér líst vel á kassarannsóknina, mikilvæg og athyglisverð.

Nafnlaus sagði...

hahahah ég vel alltaf kassa 1 og vinningurinn er alltaf í kassa 2!

Unknown sagði...

Heyrdu heyrdu.... thetta meikar nu bara ekkert sens stelpur... thvi eg vel ALLTAF kassa 2.... og vinningurinn er oftast i 3, en stundum i 1 lika.

thetta er bullshit