föstudagur, mars 14, 2008

Svar við óskum um bloggfærslur

Sælar, ég lofa því að ég mun blogga meira þegar ég hætti að vera súr í hausnum. Er á vaktaviku núna og er ótrúlega rugluð eitthvað. Ósk gisti hjá mér í nótt og hún var að segja mér að í morgun hefði ég legið með opin augun, verið að horfa undarlega í kringum mig og flissa alltaf annað slagið, flissa svona letilega, og á meðan var Gústi að labba á hausnum á mér.
Ég man nú ekkert eftir þessu, vildi að ég vissi hvað mig var að dreyma því það virðist hafa verið fyndið og skemmtilegt.

Næturvaktaviku minni lýkur á mánudagsmorgun og í framhaldi af því hlýtur að fara að rofa eitthvað til í kollinum á mér.

Ég mun snúa aftur.

Hasta la Vista beibí...........eða eins og skáldið spænska Terminator sagði: Sayonara beibí!!

2 ummæli:

HelgaSoffia sagði...

Mér sýnist bloggfærslur þínar í súrhausaástandi bara nokkuð vel lukkaðar, þessi lýsing á svefnvenjum þínum skemmti mér að minnsta kosti mjög vel.

Nafnlaus sagði...

Sæl
Hlakka mikið til að lesa fleiri bloggfæslur og frétta svolítið af þér, hitti þig alltof sjaldan.
Kveðja
Petra bJörg