fimmtudagur, júní 05, 2008

Gústiminn

Það er eitthvað að honum Gústa mínum, hann er bólginn á hausnum og ekki eins og hann á að sér að vera. Hefur líklega krambúlerast eitthvað í slagsmálum eða eitthvað. Hann þarf víst að fara að hitta hann Dagfinn á morgun.........vonandi verður allt í lagi með hann.

Grey Gústi minn, hef eila bara miklar áhyggjur af honum litla skinninu.

5 ummæli:

gunna sagði...

Gústi er greinilega mjög fjölskyldulega sinnaður núna. Bói með æxli, Helga með heilabólgu/mígreni og Gústi tæklaður eftir slagsmál! Greinilega þá er Bráðavaktin málið þessa dagana.

HelgaSoffia sagði...

Sendi honum mjálm og góða strauma.

Nafnlaus sagði...

Grey gústi kallinn! Hvernig lidur honum nuna? Eg viggl alveg lækn´ann fyrir thig;)

Hulda sagði...

Já Sigga, ég hugsaði mikið til þín....og vildi að þú hefðir verið heima. Alla vega þá fór Gyða með Gústa til Dagfinns á föstudaginn og það er sem ég hélt, hann var með sýkt sár og graftarpoll undir því á hausnum, hálfgerður abscess bara. Hann fékk sýklalyf og það vellur áfram úr þessu en hann er hressari finnst mér og lítur betur út, vonandi bara að hann nái að hreinsa þetta út svona því annars þarf ég að fara aftur með hann og þyrfti þá að opna inn á þetta og drenera.

Nafnlaus sagði...

uss ekki gott, vona hann hafi reddad thessu sjalfur og se ekki kominn med dren?? Kram til ykkar beggja.