föstudagur, maí 30, 2008

Nú er mér allri lokið....!!!

Ja hérna hér....úff!

Ég á það til að tárast aðeins, eða já hreinlega skæla, yfir bókum, bíómyndum, sjónvarpsþáttum og öðru. Þessi undarlega heðgun hefur reyndar færst heldur í aukana nú á seinni árum og svo sem ekki mikið við því að gera.....

......en í kvöld stóð ég sjálfa mig að því að skæla yfir bíómynd sem heitir "Húrra hóra" eða "Hurrah Hora" uppá sænsku......



....ég veit ekki alveg hvað mér á að finnast um það....???


p.s. ég hló sko alveg líka að myndinni, en samt...

4 ummæli:

osk sagði...

Eg grenjadi einu sinni yfir Grönnum...

Hulda sagði...

hahahhahahaHAHAHAHAHAHAAAA.........ég hef reyndar alveg pottþétt gert það líka!!!!!!!!

HelgaSoffia sagði...

Ég klöknaði einu sinni undan auglýsingu - sló sjálfa mig svo reyndar utanundir og það hefur ekki gerst aftur. Æ, mín ég grenjaði ekki einu sinni á ET sem krakki. Þetta eru hormónahelvítin.

Asta sagði...

Ég grenja yfir alls konar stöffi. Hef ákveðið að það sé þroskamerki ;)