fimmtudagur, maí 08, 2008

Sennilega besta grín í heimi....

......er að ganga um götur Reykjavíkurborgar og breyta hliðaspeglum á bílum sem verða á förnum vegi þannig að þeir snúi alveg inn að bílrúðunum! Arg, ég einmitt andast alltaf úr hlátri þegar ég sest inn í bílinn minn og ætla að líta í hliðarspegilinn áður en ég keyri út úr stæðinu og sé þá ekkert nema smettið á sjálfri mér......EKKI, hlæ barasta ekki neitt heldur andvarpa, stíg út úr bílnum og laga speglana mínum.

Get ekki ímyndað mér að hliðarspeglagrínarinn sitji í felum og fylgist með (og hlær að) gremju bílstjóranna þegar þeitt uppgötva að þeir hafa orðið fyrir barðinu á honum.

Ég hef nebbla orðið fyrir barðinu á hliðarspeglagrínaranum, er samt ánægðari með hann heldur en hoppaonábílþakagrínaranum sem ég varð fyrir barðinu á síðasta sumar en sá óprúttningi náungi skemmdi bara sæta litla bílinn minn á meðan ég var fjarri góðu gamni í útlöndunum.

Þá kýs ég hliðarspeglagrínarann miklu frekar.

Afsakið færsluna, er bara að nálgast 24 tímana í vöku og sit heima hjá mér að berjast við að sofna ekki því ég þarf að mæta á mjög svo leynilegan og mikilvægan fund áður en ég get fengið mér eftirvaktalúrinn minn. Er alveg orðin stjörf og er að reyna að drepa tímann, sökum andleysis datt mér ekkert sniðugra í hug til að setja hér inn.

Leiter

5 ummæli:

Asta sagði...

úúú, leynifundur - en spennó!

Hliðarspeglagrínarinn er skrýtinn fýr.Ætli hann hafi ekkert skemmtilegra að gera?

HelgaSoffia sagði...

Hliðarspeglamölvaragrínarinn er samt verri.

Nafnlaus sagði...

Sökum anna og mikillar þoku var ég búin að steingleyma fallega og skemmtilega blogginu þínu!! Ken Lee skvísan í galakjólnum er alveg búin að eiga hug okkar allan hér á nesinu. Bara yndislegt!!!
Það er alltaf svo skemmtó að lesa bloggin þín, vonandi heppnaðist leynifundurinn vel.. spennó spennó. Ef þú vilt deila e-u með örvæntingarfyllri húskonu máttu alveg slá á þráðinn... jafnvel betra kíkja í kaffi og meðð´í.
Knús - slumm og slef
Jó og AB grísirnir

Hulda sagði...

gott að geta glatt nokkur hjörtu með góðu gríni ;)

ætla alveg að nýta mér þetta góða boð þegar ég afsúrna eftir vaktatörnina :)

Unknown sagði...

mér finnst hlidarspegla grínarinn smá fyndinn.....


en ég á ekki bíl og hef aldrei ordid fyrir bardinu á honum..

kv. Erna